|
Við erum komin til starfa... |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 09 ágúst 2010 09:51 |
|
Hjartanlega velkomin eftir sumarfrí. Við á Heiðarborg vonum að börn og foreldrar hafi átt gott og gleðilegt sumarfrí saman. Nú förum við hægt og rólega af stað eftir gott frí. Nataly er nýr starfsmaður sem verður á Brekku í vetur og bjóðum við hana hjartanlega velkomna. Svava Jónsdóttir mun svo koma til starfa hjá okkur seinni partinn í ágúst. Fleiri breytingar eru á döfinni; Hrefna Anna hættir hjá okkur í næstu viku, Gunnur og Hlín eru að hætta hjá okkur 20.ágúst og eins sumarstúlkurnar okkar, Þórunn, Tinna Níelsdóttir og Tinna Sigurðardóttir. Svava Dóra mun flytja sig af Brekku yfir á Lund og Kía mun færa sig af Bala og taka við deildarstjórn á Laut.
20 ágúst er starfsdagur hjá starfsfólki leikskólans og því leikskólinn lokaður. En á þeim degi verður lögð drög að skipulagi haustsins á Heiðarborg. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
mánudagur, 12 júlí 2010 09:26 |
|
Nú verður leikskólinn lokaður í fjórar vikur og óskum við foreldrum og börnum gleðilegs sumarfrís og með ósk um ánægjulegar stundir. Sjáumst hress og kát 9. ágúst. |
|
Almennar fréttir
|
|
fimmtudagur, 01 júlí 2010 09:33 |
|
Þá er sumarskólanum lokið hjá okkur á Heiðarborg en hann hefur verið starfandi í júní. Tíminn hefur verið fljótur að líða við mörg og fjölbreytt verkefni. Börnin hafa verið í skapandi starfi, hlutverkaleik, smíðum, vettvangsferðum og fleira. Nú munum við taka því rólega fram að sumarfríi.
Þann 20. ágúst verður starfsdagur á leikskólanum og því er leikskólinn lokaður.
Að lokum viljum við láta vita að ekki verður gefið lýsi í morgunmat fram að sumarfríi. Tökum upp þann góða sið aftur í ágúst. |
|
Til hamingju með afmælið! |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 18 júní 2010 11:01 |
|
.jpg)
Leikskólinn Heiðarborg tók til starfa 1.júní 1990 og fagnar því 20 ára starfsafmæli. Haldin var afmælis-og sumarhátíð16.júní með mikilli veislu. Börn og starfsfólk fóru í sína árlegu 16.júní skrúðgöngu um hverfið. Gengið var með íslenska fána og söngvar sungnir. Klukkan hálf þrjú hófst svo afmælishátíðin með frumflutningi barnanna á "Heiðarborgarlagi" sem samið var í tilefni afmælisins. Höfundur textans er Valgerður Ólafsdóttir, starfsmaður á Heiðarborg. Frekar þungskýjað var um morguninn en svo fagur var söngur barnanna að sólin braut sér leið í gegnum skýin og fagnaði með börnum, foreldrum, starfsfólki og öðrum gestum. Nutu allir veðurblíðunnar í garðinum og var boðið upp á andlitsmálun, sápukúlur og afmælisköku auk veitinga frá foreldrum. Mikil gleði og ánægja einkenndi hátíðina og þökkum við kærlega öllum þeim sem komu og fögnuðu með okkur.
Komnar eru myndir á myndasíðuna. |
|
|
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 1 af 3 |