Leikskólinn Heiðarborg er fjögurra deilda leikskóli í Seláshverfi, útjaðri Reykjavíkur og á honum dvelja 83 börn á aldrinum 1 - 6 ára. Leikskólinn er opinn virka daga kl. 7:30 - 17:00. Í leikskólanum er aðaláhersla lögð á leikinn, málrækt, hreyfingu og skapandi starf. Einnig er lögð áhersla á að skapa börnunum öruggt umhverfi, efla þroska þeirra og rækta tjáninga- og sköpunarmátt. Styrkja sjálfsmynd þeirra svo þau öðlist öryggi og getu til að leysa mál sín á friðsamlegan hátt.
Leikskólinn var opnaður sem þriggja deilda leikskóli 1990 en stækkaður í fjórar deildir 1996. Á deildunum Bala og Laut eru 3 - 6 ára börn og á Brekku og Lundi eru 1 - 3 ára börn. Leikskólinn er staðsettur nálægt Rauðavatni, Elliðaárdalnum og hesthúsunum í Víðidal og njótum við samvista við þessar náttúruperlur í gönguferðum og nýtum það í fræðslu með börnunum.
Leikskólastjóri er Arndís Árnadóttir og aðstoðarleikskólastjóri er Gunnur Árnadóttir.
|