| Til hamingju með afmælið! |
|
|
|
| Almennar fréttir | |||
| föstudagur, 18 júní 2010 11:01 | |||
|
Leikskólinn Heiðarborg tók til starfa 1.júní 1990 og fagnar því 20 ára starfsafmæli. Haldin var afmælis-og sumarhátíð16.júní með mikilli veislu. Börn og starfsfólk fóru í sína árlegu 16.júní skrúðgöngu um hverfið. Gengið var með íslenska fána og söngvar sungnir. Klukkan hálf þrjú hófst svo afmælishátíðin með frumflutningi barnanna á "Heiðarborgarlagi" sem samið var í tilefni afmælisins. Höfundur textans er Valgerður Ólafsdóttir, starfsmaður á Heiðarborg. Frekar þungskýjað var um morguninn en svo fagur var söngur barnanna að sólin braut sér leið í gegnum skýin og fagnaði með börnum, foreldrum, starfsfólki og öðrum gestum. Nutu allir veðurblíðunnar í garðinum og var boðið upp á andlitsmálun, sápukúlur og afmælisköku auk veitinga frá foreldrum. Mikil gleði og ánægja einkenndi hátíðina og þökkum við kærlega öllum þeim sem komu og fögnuðu með okkur. Komnar eru myndir á myndasíðuna.
|