|
|
Á eldri deildum leikskólans er val innan deildar. Börnin velja þá viðfangsefni sem er í boði eftir sínu áhugasviði. Viðfangsefnin eru breytileg eftir vikudögum. Hlín er með skapandi starf seinnipartinn á fimmtudögum. Er þá verið að vinna sameiginlegt listaverk sem mun prýða salinn okkar. Börnum á Laut og Bala hafa aðgang að þessu vali.
Með vali á viðfangsefni læra börnin að taka ákvarðanir og öðlast þekkingu í gegnum eigin virkni og frumkvæði. |
|
|
Könnunarleikurinn er leikaðferð sem notuð er á yngri deildum leikskólans. Hún felst í að börnin rannsaka og uppgötva á eigin spýtur. Leikefnin eru verðlausir hlutir eins og dósir, pappahólkar, tvinnakefli, steinar og skeljar en líka heimilishlutir eins og klemmur, hárrúllur, keðjur og gardínuhringir. Börnin fá ákveðið pláss þar sem búið er að koma fyrir leikefni, síðan fær barnið ró og næði til þess að kanna og rannsaka hlutina á sínum forendum. Frágangur og tiltekt er hluti af leiknum og þannig tengjum við saman orð og athafnir. |
|
Í starfi með elstu börnunum leggjum við megináherslu á; leikinn, lífsleikni, stærðfræði, málrækt, hreyfingu, skapandi starf, tónlist, náttúruna, og samstarf milli skólastiga. Elstu börnin fara vikulega í vettvangsferðir og er úrvinnsla úr þeim ferðum á mismunandi hátt.
Hér má nálgast námsskrá elstu barna Námsskrá elstu barna í Heiðarborg |
|
|
Í hópastarfi eru ákveðin börn saman í hóp í verkefnavinnu. Hópurinn tekur saman þátt í þemavinnu í listagili, fer í gönguferð og leikur með ákveðin viðfangsefni. |
|
Einingakubbarnir eða Unit Blocks voru fundnir upp af bandarískum barnaskólakennara, Caroline Pratt. Caroline stofnaði sinn barnaskóla árið 1914 þar sem hún kom sínum hugmyndum um uppeldi og menntun í framkvæmd. Hún varð fyrir miklum áhrifum frá heimspekingnum og framfarasinnanum John Dewey sem taldi að umhverfið barna ætti að vera sniðið að þörfum þeirra og gefa börnum tækifæri til uppgötvunar á sínum forsendum. Caroline vildi að börn hefðu tíma og efnivið til þess að vinna með hugmyndir sína og kennarinn ætti að vera börnum stuðningur og alltaf tiltækur. Það væri hinsvegar ekki hlutverk kennarans að gefa börnunum lausnirnar upp í hendurnar heldur efna til skapandi sjálfstæðrar hugsunar og umræðna sem leiddi börnin áfram í þekkingarleitinni.
Einingakubbarnir eru úr massívum hlyn og ganga stærðfræðilega upp í hvern annan. Það er einn eininlegur einingakubbur sem aðrir kubbar ganga uppí. Auk þess að vinna með kubbana gefst börnum kostur á að nýta annan efnivið með s.s. spotta, blöð, efnisbúta, skeljar, litríka steina og smákubba. Þessi auka efniviður gefur tækifæri til dýpka leikinn og skapa byggingum aukinn tilgang og líf.
Við notum kubbana í margvíslegum tilgangi:
Í hlutverka-ímyndunarleik
Við úrvinnslu ákveðinna verkefna (eldri börnin)
Við tilraunir
Einingarkubbarnir er efniviður sem þjálfa samvinnu augna og handa en auk þess samvinnu barnanna og samskipta. Ímynduranaflið fær að njóta sín og ýtt er undir sjálfstæða hugsun.
Barnaskóli Caroline Pratt er enn starfandi í dag og er staðsettur á Manhattan, New York. Skólin hét upphaflega “The Play School” en fékk síðar nafnið “The City and Country School”. Margir leikskólar á Íslandi nýta einingarkubbana í leik og starfi með ungum börnum og undanfarið hafa grunnskólar verið að taka þá inn í sitt starf með yngstu nemendunum.
Börn af Bala, Laut og Brekku eiga einn morgun í viku í kubbunum. Kubbastundirnar eru alla morgna frá mánudegi til fimmtudags undir leiðsögn Gunnar.
|
|
|
|
|
|