|
Til hamingju með afmælið! |
|
|
|
|
Almennar fréttir
|
|
föstudagur, 18 júní 2010 11:01 |
|
.jpg)
Leikskólinn Heiðarborg tók til starfa 1.júní 1990 og fagnar því 20 ára starfsafmæli. Haldin var afmælis-og sumarhátíð16.júní með mikilli veislu. Börn og starfsfólk fóru í sína árlegu 16.júní skrúðgöngu um hverfið. Gengið var með íslenska fána og söngvar sungnir. Klukkan hálf þrjú hófst svo afmælishátíðin með frumflutningi barnanna á "Heiðarborgarlagi" sem samið var í tilefni afmælisins. Höfundur textans er Valgerður Ólafsdóttir, starfsmaður á Heiðarborg. Frekar þungskýjað var um morguninn en svo fagur var söngur barnanna að sólin braut sér leið í gegnum skýin og fagnaði með börnum, foreldrum, starfsfólki og öðrum gestum. Nutu allir veðurblíðunnar í garðinum og var boðið upp á andlitsmálun, sápukúlur og afmælisköku auk veitinga frá foreldrum. Mikil gleði og ánægja einkenndi hátíðina og þökkum við kærlega öllum þeim sem komu og fögnuðu með okkur.
Komnar eru myndir á myndasíðuna. |
|
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 18 maí 2010 13:07 |
|
Þá er sumarskólinn byrjaður hjá okkur og mun standa yfir í júní. Sumarskólinn er starfræktur úti og byrjar uppúr kl.9:00 á morgnanna og er fram að hádegi. Í sumarskólanum er val á útisvæði fyrir börnin. Valið er: Skapandi starf, hlutverkaleikur, smíðar, kríta/sápukúlur/vatnsmálun og vettvangsferðir. Geta börnin valið viðfangsefni eftir sínu áhugasviði. Elstu börnin hafa sinn eigin sumarskóla þar sem þau verða mikið á flakki í júní í vettvangsferðum og rannsóknum. Vonumst við til að allir skemmti sér vel í sumarskólanum og veðrið leiki við okkur. |
|
Almennar fréttir
|
|
þriðjudagur, 20 apríl 2010 15:46 |
|

Esjuferð tveggja elstu árgangana á Heiðarborg og Blásölum tókst einstaklega vel. Allir voru mjög duglegir að ganga og ekki hvað síst að spá í náttúruna, tröllin og hinar og þessar sögur. Leiðsögn var í höndum Fríðu frá Ferðafélagi Íslands sem sagði okkur allt um hvernig maður hagar sér þegar farið er á fjöll, við hendu ekki rusli og svo sagði hún okkur sögur frá Esjunni. Við voru einstaklega heppin með veður því að rétt þegar við komum niður í Esjustofu fór að snjóa.
Komnar eru myndir á Myndasafnið undir Sameiginlegt. |
|
|
<< Upphaf < Fyrri 1 2 3 4 Næsta > Endir >>
|
|
Síða 2 af 4 |